10.02.1943
Neðri deild: 54. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1070 í B-deild Alþingistíðinda. (1804)

16. mál, fiskveiðasjóður Íslands

Skúli Guðmundsson:

Ég vil aðeins vekja athygli á því, að núna á stundinni var verið að útbýta þingskjölum, sem á eru prentaðar brtt. við frv. þetta, er samþ. voru í hv. Ed.

Ég vildi aðeins í því sambandi gera þá till., að umr. um mál þetta ver ði frestað, þar til sjútvn. hefur fengið tækifæri til að athuga þessar breytingar.