10.02.1943
Neðri deild: 54. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1070 í B-deild Alþingistíðinda. (1805)

16. mál, fiskveiðasjóður Íslands

Frsm. minni hl. (Gísli Guðmundsson):

Það var aðeins um þetta sama atriði, sem ég ætlaði að tala. Það hafa verið samþ. tvær brtt. við frv. þetta í Ed., sem hafa talsverða þýðingu. Ég teldi ekki óeðlilegt, að sjútvn. fengi að bera saman ráð sín um þær, áður en lengra er haldið.