11.03.1943
Neðri deild: 73. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1083 í B-deild Alþingistíðinda. (1854)

65. mál, sláturfjárafurðir

Frsm. (Jón Pálmason):

Landbn. hefur haft frv. til meðferðar og orðið sammála um að leggja til, að það verði samþ. óbreytt. Í frv. er tiltölulega litil breyting fólgin, ofurlítil rýmkun á því. hverjir megi fá slátrunarleyfi. Sé ég ekki ástæðu til að fjölyrða um það, nema andmæli komi fram, og óska að frv. verði vísað áfram til 3. umr.