04.03.1943
Neðri deild: 71. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1170 í B-deild Alþingistíðinda. (2026)
51. mál, virkjun Fljótaár
Áki Jakobsson:
Herra forseti. — Það er aðeins til þess að leiðrétta misskilning. Ég sagði, — og það stendur —, að Siglufjarðarkaupstaður ræðst í þessa virkjun, hvort sem hann fær 100% ábyrgð eða ekki fyrir láni til hennar. Og hann hefur haft möguleika til þess að fá lán til virkjunarinnar, sem ég sé ekki ástæðu til að fara nánar út í aftur. En það getur staðið svo á, að það sé erfiðara að fá lítið lán á eftir stóru fyrir svona fyrirtæki heldur en að fá lán á einu bretti fyrir virkjunina að öllu leyti, — það getur staðið þannig. Og það getur verið erfiðara að fá lán, ef veitt er 85% ábyrgð, heldur en ef ríkisábyrgðin er 100%. Og ég sé ekki ástæðu til þess, að ríkið setji stein í götu virkjunarinnar, sem vitað er, að verður framkvæmd og komið upp fyrir bæjarfélagið. Og vitanlega hlýtur ríkið að hlaupa undir baggann, ef bærinn ætti í einhverjum sérstökum erfiðleikum vegna virkjunarinnar. Og þá er óþarfi, ,ð ríkið geri þessa virkjun dýrari en þarf að vera.
Annars held ég, að þessi till. hv. nm. komi fram nokkuð af gremju yfir því, hvernig farið var með dagskrártill. þeirra.