09.03.1943
Neðri deild: 72. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1183 í B-deild Alþingistíðinda. (2055)

8. mál, vegalög

Páll Zóphóníasson:

Ég skal gjarnan verða við þeirri ósk hv. formanns samgmn. að taka brtt. minar aftur til 3. umr. En eins og hann sagði, koma dagar eftir þennan dag, og á einhverjum þeim degi verður 3. umr. Og ég vona, að samgmn. noti þá fáu daga á milli umr. til þess að sjá og skilja, að þessi vegur á að koma, og sjái sér fært að leggja til, að svo verði. (GSv: Á sínum tíma. Á sínum tíma).