09.03.1943
Neðri deild: 72. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1183 í B-deild Alþingistíðinda. (2058)

8. mál, vegalög

Forseti (JJós):

Ég hef heyrt mál hv. 10. landsk. (GSv). En þó að mér séu ekki að öllu leyti kunnar aðferðir við þess háttar, þá kann ég ekki við að láta ekki koma undir atkv. brtt. án þess, að flm. þeirra segi til um það sjálfir, hvort svo skuli gert eða ekki. Það stendur nú svo á, að margir af hv. flm. þessara brtt. eru nú ekki viðstaddir á fundi, og tel ég því eftir atvikum réttara, að atkvgr. verði frestað, enda sé ég ekki, að það geti skaðað málið neitt.