11.03.1943
Neðri deild: 73. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1184 í B-deild Alþingistíðinda. (2061)

8. mál, vegalög

Forseti (JJós):

Ég mun fallast á þá skoðun hv. 10. landsk., að ekki eigi nú að bera undir atkv. þær brtt., sem umorðunar þurfa, ef brtt. á þskj. 460 verða áður samþ., og mun þá telja þær allar teknar aftur, ef ekki koma mótmæli fram, og tæki flm. upp við 3. umr. þær þeirra, sem þeir vilja, með breyttu orðalagi, þar sem þörf gerist. Þetta styðst einnig við það, að samgmn. hefur tekið tillit til mikils þorra brtt. frá einstökum þm., og málið skýrist bezt fyrir þm. til 3. umr. með því, að farin sé þessi leið.