25.03.1943
Efri deild: 81. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1204 í B-deild Alþingistíðinda. (2106)
8. mál, vegalög
Ingvar Pálmason:
Ég vil aðeins til að árétta það, sem ég sagði áður, sanna skjallega fyrir hv. þm. Dal., að í núgildandi vegalögum stendur 8. liður í Austurlandsvegum: „Norðfjarðarvegur: Frá Eskifirði til Neskaupstaðar“. Ekkert annað stendur í vegalögunum. Vegamálastjóra er ætlað að ákveða. hvar vegurinn skuli liggja. Hann gerir það á sína ábyrgð og hefur fullt leyfi til þess. Hér er því ekki um nýjan veg að ræða.