23.02.1943
Neðri deild: 63. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1206 í B-deild Alþingistíðinda. (2111)

136. mál, jarðræktarlög

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. — Ég hef ekki nema allt gott um frv. þetta að segja, en ég vil beina því til hv. landbn., að hún athugi það, að um leið og hún tekur af vélasjóði það hlutverk, sem hann til þessa hefur haft, að lána til stærri vélakaupa, þá þarf að koma deild við Búnaðarbankann, er geti veitt bæði félögum og einstaklingum, er ráðast í stærri vélakaup, lán til kaupanna. Til þess að þetta geti orðið, tel ég, að muni þurfa að breyta l. bankans, og vildi ég biðja n. að athuga það og vona, að hún síðar geti lagt fram breytingar á lögum bankans, ef hún finnur, að það er nauðsynlegt. Ég vil mælast til þess, að hv. n. athugi þetta.