18.03.1943
Efri deild: 76. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1222 í B-deild Alþingistíðinda. (2169)

111. mál, rithöfundarréttur og prentréttur

Frsm. minni hl. (Jónas Jónsson):

Ég vil aðeins taka fram, eins og kom fram hjá hv. þm. Barð., að þar sem ég tel brtt. hans við dagskrána að vissu leyti falla betur við málið, þá mun ég greiða henni atkv., en tek till. mína ekki aftur, af því að till. hans er stíluð sem brtt. og getur því ekki staðizt ein.