28.01.1943
Efri deild: 43. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1260 í B-deild Alþingistíðinda. (2237)

37. mál, lögsagnarumdæmi Reykjavíkur

Frsm. meiri hl. (Bjarni Benediktsson):

Ég vildi einungis geta þess, að allshn. hafði þetta frv. til athugunar í morgun, og án þess að nokkur formleg ályktun væri um það gerð, leggur hún til, að brtt. á þskj. 282 verði samþ. Ég vildi aðeins gera við brtt. ofurlitla orðalagsbreyt. Sú brtt. liggur ekki fyrir, en ég legg til, að í staðinn fyrir orðin „sem er neðan við þjóðveginn“ komi: sem er neðan við Norðurlandsbraut, — og mun ég bera fram um þetta skrifl. brtt.