16.02.1943
Neðri deild: 59. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1274 í B-deild Alþingistíðinda. (2252)
37. mál, lögsagnarumdæmi Reykjavíkur
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. — Ég hafði ekki ætlað að taka til máls í þessu máli, en ræða hv. þm. Siglf. gaf mér tilefni til þess. Í ræðu hans gætti alveg reginmisskilnings, en reyndar var ekki við öðru að búast hjá þeim táfræðingi. Það er sami misskilningurinn og fram kom um árið, þegar því var haldið fram, að með því að ná í Korpúlfsstaði og reka þar mjólkurbú gæti bærinn fullnægt mjólkurþörf bæjarbúa. Þótt hv. þm. Siglf. sé búinn að vera hér í vetur, hefur hann ekki öðlazt meiri skilning á þörfum bæjarbúa í þessu efni. Hv. þm. Siglf. verður að athuga, að fleiri menn eru búsettir hér en á Siglufirði, og þó getur Siglufjörður ekki mjólkurfætt sína bæjarbúa með kúabúi sínu. En hann skilur ekki nokkurn hlut, vesalingurinn þessi. Hann heldur, að mjólkurl. hafi orðið til þess að drepa kúabúin í nágrenni bæjarins, af því að maður, sem rak kúabú, þóttist ekki hafa nógu mikið upp úr því og fór því í þess stað að kaupa fisk og flytja hann til Englands. Þetta var fyrsti íslenzki bóndinn, sem hljóp frá skyldustörfum sínum sem bóndi. Þegar hann komst í þá aðstöðu, að hann hélt að hann græddi meira á sjónum, þá hætti hann. Og þá samþykkti bæjarstjórnin að kaupa jarðirnar af honum. Og hér á að innlima þær í Rvík. En svo góður v ar bærinn við hann, að hann skildi eftir hólma af landinu, svo að hann þyrfti ekki að koma til Rvíkur, og þessi hólmi á nú áfram að vera í Mosfellssveit. Þeir, sem vita, að þessi sami maður flúði á sínum tíma úr Reykjavík til þess eins að fá lægra útsvar í Mosfellssveit en hér, skilja vel, hví hólminn er nú skilinn eftir. Það eru brjóstgæði við gamalmenni.
Þessir menn halda því fram, að þetta hafi verið gert til þess að fullnægja mjólkurþörf bæjarbúa. Nei, það er bezt að segja það eins og það er. Þegar þessi maður var kominn í strand, vildi bærinn hjálpa honum. Sú hjálp er eins konar verðlaun fyrir að hlaupa frá skyldustörfum sínum. Það var sýnilegt, að ef kaupin hefðu orðið að ganga til baka, þá hefði aumingja maðurinn orðið að sitja með jörðina. En til þess að bjarga öllu við var ekki um annað að ræða en fara þessa leið.
Og þegar haldið er fram, að bæinn vanti land, þó að allt í kringum bæinn sé land, sem bærinn á, sem er gersamlega ónotað, þá skulum við bara vera hreinskilnir og segja eins og er, að þetta frv. er flutt að tilhlutan bæjarstjórnar Rvíkur í þeim tilgangi einum að reyna að hjálpa eiganda Korpúlfsstaða með því að losa hann við jörðina fyrir sæmilegt verð, af því að hann gefst upp á búskapnum og fer að reka aðra atvinnu, sem hann álítur, að muni borga sig betur. Og kommúnistar reyna svo að hjálpa til, af því að það er þeirra „princip“, sem hér á að framkvæma, að ná eignarhaldi á einstakra manna landi, og það get ég fyrirgefið þeim. En sjálfstæðismenn, sem ávallt hafa viljað hafa lóðir og jarðir í eigu einstaklinga, þeir þurfa ekki að telja neinum trú um, hvað þeim gengur til. Við vitum það. Það er verið að bjarga 2–3 millj. kr. fyrir fyrrv. forsrh. með því að láta bæjarbúa borga.