31.03.1943
Neðri deild: 87. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1303 í B-deild Alþingistíðinda. (2277)

37. mál, lögsagnarumdæmi Reykjavíkur

Frsm. meiri hl. (Gunnar Thoroddsen):

Út af fyrirspurn hv. þm. V.-Húnv. skal ég aðeins taka það fram, að þessar tölur allar hef ég ekki við höndina, sem fyrir spurnir hv. þm. voru um, og hefði hann átt að bera fram þessar fyrirspurnir áður en ég hélt ræður minar þrjár í þessu máli. En það má athuga það til 3. umr., hvort hagt verður þá að svara þessu.