07.04.1943
Neðri deild: 92. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1309 í B-deild Alþingistíðinda. (2292)

37. mál, lögsagnarumdæmi Reykjavíkur

Ólafur Thors:

Herra forseti. — Ég vil þakka þeim hv. þm., sem talað hafa, fyrir góðar undirtektir undir þessar brtt. Við hv. þm. Mýr. munum flytja brtt. í samræmi við það, sem hv. frsm. minni hl. allshn., 1. þm. Árn., benti á, um að þá fyrst komi til eignarnáms, að samkomulag takist ekki um kaup á jörðinni. Ég vil svo þakka þeim hv. þm., sem hafa staðið gegn því, að Mosfellshreppur yrði beittur því ofbeldi, sem frv. fól í sér, og einnig þakka ég borgarstjóranum og hv. 8. þm. Reykv. fyrir sáttaumleitanir þeirra í málinu.