19.03.1943
Neðri deild: 79. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1317 í B-deild Alþingistíðinda. (2319)

154. mál, Kennaraskóli Íslands

Bjarni Ásgeirsson:

Ég verð að krefjast þess, að till. verði borin upp eins og forseti ætlaði sér, því að ég get verið sammála till. eins og hún er prentuð á þskj. 568, en ef hún verður borin fram eins og n. hugsar sér hana, verðum við fjórmenningarnir hérna að koma fram með brtt. við hana.