06.02.1943
Efri deild: 49. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 81 í C-deild Alþingistíðinda. (2561)

108. mál, sala á spildu úr Neslandi í Selvogi

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Með tilvísun til þess, að hér er aðeins um að ræða heimild fyrir ríkisstj. og settar eru skorður fyrir því í brtt. 344, sem búið er að samþ., að þetta sé landinu til tjóns, segi ég já.

2. gr. samþ. með 9 shlj. atkv.

Fyrirsögn samþ. án atkvgr.

Frv. vísað til 3. umr. með 9:2 atkv.