07.01.1943
Efri deild: 26. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 109 í C-deild Alþingistíðinda. (2612)

73. mál, jarðræktarlög

Flm. (Þorsteinn Þorsteinsson):

Það atriði, sem þetta frv. ræðir um, breyt. á jarðræktarl., hefur verið þaulrætt bæði í blöðum landsins um mörg ár og einnig á fundum. Og hér í hv. d. var það til umr. á s.l. vori. Vegna þessarar sérstöðu um efni þessa frv., hef ég talið enga nauðsyn að ræða málið á þessu stigi og vísa þess vegna til grg. okkar flm. Ég legg til, að frv. verði vísað til landbn. að lokinni þessari umr., en einmitt í þeirri n. eiga sæti fulltrúar allra flokka þingsins. Fer bezt á því, að ekki sé lagt út í umr. fyrr en sú n. er búin að athuga frv. og birta álit sitt.