07.01.1943
Efri deild: 26. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 109 í C-deild Alþingistíðinda. (2613)

73. mál, jarðræktarlög

Haraldur Guðmundsson:

Ég held það væri ráðlegast að afgr. þetta mál þegar við þessa umr. Þetta frv. er margsinnis búið að liggja fyrir þinginu, og ég geri ekki ráð fyrir, að neinar upplýsingar séu komnar fram síðan seinast, sem breyti afstöðu þm. til þess. Ég er ekki vanur að vera á móti því, að mál fái að ganga til n. Og ég veit, að hv. þm. skilja það ekki sem óvilja í þeirra garð, þótt ég beiti mér fyrir því, að greidd verði atkv. á móti því nú þegar.