01.03.1943
Neðri deild: 68. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 128 í C-deild Alþingistíðinda. (2644)
50. mál, dragnótaveiði í landhelgi
Frsm. (Sigurður Bjarnason):
Herra forseti. Ég skal ekki lengja umr. um þetta mikið. Mig furðar ekki mikið á því, þótt hv. 2. þm. Eyf. og hv. þm. Borgf. telji hér öfugt að farið. Þeir eru gamlir riddarar úr orustum, sem búnar eru að standa um þetta mál á Alþ. Það er því eðlilegt, að þeir fægi vopn sín og leggi sem ákafast með þeim í ýmsar áttir, þegar þetta mál er til umr.
Í sambandi við það, sem þessir hv. þm. sögðu, vildi ég drepa á nokkur atriði. Hv. þm. Borgf. þótti það einkennilegur háttur, sem hér væri á hafður um afgreiðslu þessa máls, að það ætti að vísa því til n., sem ekki væri búið að skipa. Ég vil benda honum á það, að aðalatriðið er, að Alþ. hefur látið vilja sinn í ljós um það, að þessi n. skuli skipuð. Alþ. hefur þegar samþ. þál. um það, að þessi n. skuli skipuð og hún skuli fjalla um þau verkefni m.a. að undirbúa löggjöf, er varðar sjávarútveginn. Og þó að hv. þm. Borgf. sé nokkuð úr alfaraleið þess, sem að sjómennsku lýtur, þá ætla ég, að honum sé kunnugt um það, að löggjöfin um dragnótaveiðar í landhelgi muni þó a.m.k. vera mál, sem varðar sjávarútveginn, og hann geti því viðurkennt, að það sé mjög eðlileg leið, sem hv. sjútvn. hér hefur bent á, að vísa þessu mjög viðkvæma deilumáli til n., sem á að hafa með höndum rækilega athugun á löggjöf varðandi sjávarútveginn og enn fremur athugun á ýmsum öðrum atriðum varðandi útveginn. Og ég hygg, að hv. sjútvn. hafi hitt á heppilega leið, þar sem vænta má að þessi n. verði skipuð mönnum, sem hafa vit á þessum málum og hafa sér til aðstoðar sérfróða menn, sem treysta megi til þess að rata þá leið í þessu viðkvæma máli, sem heppilegust sé þessum atvinnuvegi landsmanna.
Það eru svo aðeins örfá atriði, sem ég vildi drepa á í sambandi við það, sem hv. 2. þm. Eyf. sagði. Hann spurði, hv að væri að marka, þó að nokkrir útgerðarmenn í Eyjafirði sendu mótmæli gegn þessu máli, það væru fleiri menn en hinir við Eyjafjörð, sem vildu fá frv. samþ., og þetta væru bara hjáróma raddir úr hans kjördæmi. En það er raunar úr tveimur mestu útgerðarstöðunum, sem þessi mótmæli hafa komið frá. Og það eru líka fleiri menn en útgerðarmenn og sjómenn við Eyjafjörð og úr þessum héruðum, sem hv. 2. þm. Eyf. er frá, sem varðar um það, hvort Norðurland verður lokað fyrir dragnótaveiði á þeim tíma, sem. hún hefur tíðkazt. Það eru víðar sjómenn á landinu en í þessum héruðum. Þjóðin í heild hefur lagt tugi og hundruð þúsunda, að ég ekki segi milljónir króna í atvinnufyrirtæki, sem tilveru sína eiga undir því, að dragnótaveiðar, líka fyrir Norðurlandi, séu leyfðar.
Ég hygg, að ekki þurfi að svara því, að ég og hv. sjútvn. höfum sett okkur illa inn í þetta mál. Ég veit ekki, hvor okkar hv. 2. þm. Eyf. eða ég höfum haft betri skilyrði til þess yfirleitt að kynna okkur dragnótaveiðar. En ég hygg, að meiri hl. hv. sjútvn., sem hefur komizt að þeirri niðurstöðu að leggja til að vísa málinu frá, hafi mjög vel athugað sinn gang.