05.01.1943
Neðri deild: 25. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 113 í B-deild Alþingistíðinda. (269)
89. mál, innflutningur og gjaldeyrismeðferð
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti. — Ef svo færi, að ekki yrði hægt að flytja inn frá Ameríku nema 66 þús. smál. á þessu ári, þá tel ég það alveg ljóst, að það er ekki sú framkvæmd á samkomulaginu við Bandaríkin, sem þjóðin hefur vænt. Ég lít nú svo á, þegar fjmrh. nefndi þessa upphæð, að það væri hið allra minnsta magn, sem komið gæti til mála, að flutt yrði til landsins á árinu. En það er alveg augljóst, að ef ekki verður hægt að flytja meira til landsins á þessu ári, þá hlýtur það að gjörbreyta öllu ástandi í landinu, og ég tel það vafasamt, að hægt verði með því að halda uppi rekstri atvinnuveganna. Ég vil því beina því til ríkisstj. að athuga rækilega þetta atriði samninganna án þess þó að gera óvarlega miklar kröfur um innflutning á hendur hinum samningsaðilanum. Það kom fram nýtt atriði hjá hv. þm. Borgf. um, að ómögulegt væri að afgr. þetta frv. nema stj. léti þ. í té allar upplýsingar um fyrirætlanir sínar í þessum efnum.
Ég hafði ímyndað mér, að Viðskiptaráð hefði störf verðlagsn. með höndum, en nú kom það fram hjá hæstv. fjmrh., að ríkisstj. hefur hugsað sér að skipa einnig verðlagsstjóra, og er ætlunin, að völdunum verði skipt milli hans og viðskiptaráðs. Nú verður að athuga, hvað Alþ. getur fallizt á af þessu, en það nær engri átt, að þegar eitt málið hefur verið afgr., þá rekist næsta mál á það að einhverju leyti.
Ég fellst á það, eins og hæstv. fjmrh. drap á, að æskilegast verði að láta bæði málin ganga nokkurn veginn samhliða í gegnum þ.