11.02.1943
Efri deild: 54. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 164 í C-deild Alþingistíðinda. (2718)
118. mál, jöfnunarsjóður vinnulauna
Gísli Jónsson:
Ég vil vænta þess, að hv. allshn. setji þessum aðila ákveðinn hæfilegan frest, því að það getur ekki verið meining þingsins að leyfa aðilum fyrir utan þingið að halda málum svo lengi sem þeim sýnist, því að þá eru þeir aðilar látnir ákveða, hvort mál skuli ganga fram. Það er réttmætt að láta slíka aðila gefa umsögn, en ekki réttlátt að láta þá halda málum svo lengi sem þeim sýnist. Ég vænti því, að hv. allshn. setji Alþýðusambandinu frest til andsvara í málinu.