09.03.1943
Efri deild: 70. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 165 í C-deild Alþingistíðinda. (2721)

118. mál, jöfnunarsjóður vinnulauna

Gísli Jónsson:

Herra forseti. — Ég hef nú tvisvar áður gert fyrirspurn út af 118. máli. Það var sent til n. 22. jan. og hefur verið þar siðan. Ég gerði fyrirspurn út af því í annað sinn 24. febr., og vil ég nú mælast til þess við hæstv. forseta, að hann fái upplýst, hvað dvelur málið, og hlutist til um, að það verði afgr. frá n. hið allra fyrsta.