05.04.1943
Efri deild: 88. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 218 í C-deild Alþingistíðinda. (2766)
86. mál, rithöfundaréttur og prentréttur
Gísli Jónsson:
Ég vil í tilefni af svari hv. 2. þm. Árn., form. menntmn., leyfa mér að bera af mér þann áburð, sem hann ber á mig, að ég hafi farið með fleipur út af þessu máli.
Ég vil benda á, að þetta mál, sem hér er til umr., er á þskj. 120 skráð 86. mál og heitir frv. til l. um afnám l. nr. 127 9. des. 1941, um viðauka við l. nr. 43 20. okt. 1905, um rithöfundarétt og prentrétt, en nál. á þskj. 499 frá meiri hl. menntmn. er stílað við 86. mál, frv. til l. um afnám l. nr. 127 9. des. 1941 um viðauka við l. nr. 43 20. október 1905, um rithöfundarétt og prentrétt. (EE: Það var prentað upp). Ef það hefur verið prentað upp, þá sýnir það ekkert annað en að þeir hafa ekki kunnað að afgr. þetta mál, því að þeir hafa ekki einu sinni getað sett rétt númer eða rétta fyrirsögn eða vísað rétt til l. Þetta hefur verið afhent sem þingskjal í d., þó að það hafi verið síðar prentað upp, eins og hv. 2. þm. Árn. sagði, þegar þeir sáu, að þeir voru búnir að gera vitleysu, enda stendur á þessu þskj., ef hann hefur lesið það, að hann áskilji sér rétt til að bera fram alls konar breyt. Þskj. liggur fyrir, því verður ekki mótmælt. Svona lagað er ófyrirgefanlegt af form. n., sérstaklega þar sem það tekur til frsm. líka, þegar um er að ræða afgreiðsluna milli, sem þeir hafa haldið í n. frá því í jan. og þangað til í síðari hluta marz. Þetta er út af fyrir sig svo vítavert að hv. 2. þm. Árn. ætti að blygðast sín fyrir að reyna að gefa afsökun á svona vinnubrögðum, fyrir utan það, að það er gersamlega óverjandi, að slíkt háttalag skuli ríkja innan n. á Alþ., að menn skuli ekki koma sér saman um að afgr. mál, vegna þess að þar sé pólitík á bak við. Sá maður, sem getur ekki jafnað slíkar deilur, ætti að segja formennskunni af sér, ef hann getur ekki stjórnað starfi n. betur er hér hefur verið gert.