12.01.1943
Neðri deild: 30. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 115 í B-deild Alþingistíðinda. (278)

89. mál, innflutningur og gjaldeyrismeðferð

Fjmrh. (Björn Ólafsson):

Ég vil aðeins lýsa yfir því, að ríkisstj. hefur ekkert að athuga við þessar brtt. hv. fjhn. og mun því ekki gera neinn ágreining út af þeim.

Hv. frsm. n. tók það fram, að með brtt. á þskj. 176 væri aðeins átt við knýjandi utanaðkomandi ástæður, og þegar sá skilningur er yfirlýstur af hálfu n., þá sé ég ekkert við þá brtt. að athuga.