01.03.1943
Efri deild: 66. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 241 í C-deild Alþingistíðinda. (2823)

120. mál, kynnisferð sveitafólks

Gísli Jónsson:

Ég er ekki sammála hv. þm. Str. um þetta. Í brtt. frá landbn. Nd., á þskj. 446, eru gerðar þær breyt. á frv., að 1. og 2. gr. skuli niður falla, og með því álit ég frv. á þskj. 247 drepið og nýtt frv. tekið upp í þess stað. Ég tel því, enda þótt frv. fjalli nú um líkt atriði og áður, að það sé nýtt mál og hljóti þar af leiðandi að fá meðferð samkv. því hér í hv. d., og mun ég greiða atkv. samkv. því.