13.01.1943
Neðri deild: 31. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 120 í B-deild Alþingistíðinda. (287)

89. mál, innflutningur og gjaldeyrismeðferð

Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Ég vildi biðja hæstv. forseta að sjá um það, að leiðrétt yrði prentvilla í 2. gr. frv. Þar er í 6. lið talað um l. nr. 9 frá 1942, en á að vera l. nr. 79.

Einnig er prentvilla á 186. þskj. Þar stendur í fyrirsögn þskj. orðið „gjaldeyrisverzlun“, en á að vera „gjaldeyrismeðferð“.