08.12.1942
Neðri deild: 11. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 313 í C-deild Alþingistíðinda. (2980)

34. mál, húsaleiga

Sveinbjörn Högnason:

Það er aðeins stutt aths. Ég verð að segja, að ég á hálfbágt með að skilja það, er tiltölulega greindir menn verða tvísaga með fárra mínútna millibili, eins og nú hefur orðið. Það hlýtur að koma af því, að málstaður þeirra er óverjandi. Ég sagði aldrei, að þessi l. hefðu ekki verið samþykkt síðar af Alþ.

Annar málflutningur í þessu efni er eftir þessu, og þarf ég því ekki að gera aths. mína lengri.