10.04.1943
Efri deild: 94. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1345 í B-deild Alþingistíðinda. (3024)

155. mál, ríkisborgararéttur

Frsm. (Bjarni Benediktsson):

Ég vil rétt geta þess, að ég hef lagt fram og afhent hæstv. forseta skrifl. brtt. frá allshn. við frv. þetta um ríkisborgararétt. Brtt. er um, að einum manni, Skúla Petersen, verði bætt inn í. Við 2. umr. lágu ekki fyrir nógu glöggar upplýsingar um mann þennan, en nú hafa þær fengizt, og leggur allshn. einróma til, að brtt. þessi verði samþykkt.