12.03.1943
Efri deild: 72. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 334 í C-deild Alþingistíðinda. (3036)

153. mál, lífeyrissjóður barnakennara

Félmrh. (Jóhann Sæmundsson):

Svo sem ég drap á í niðurlagi framsöguræðu minnar um síðasta mál (frv. um lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins), mun ég láta þá ræðu nægja sem framsögu fyrir þessu máli, og vil aðeins leyfa mér að óska, að þessu frv. verði vísað til 2. umr. og til sömu nefndar og hinu.