18.12.1942
Neðri deild: 21. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 375 í C-deild Alþingistíðinda. (3120)

70. mál, kvikmyndasýningar í Siglufjarðarkaupstað

Emil Jónsson:

Ég hef ásamt hv. 7. landsk. þm. (LJós) flutt brtt. við þetta frv. á þskj. 107. Það er ekki venja að ræða brtt. við 1. umr. hér, og skal ég ekki heldur gera það að þessu sinni. En ég vil mælast til þess, að sú n., sem fær þetta mál til athugunar og umsagnar, taki einnig þessar brtt. okkar til athugunar og umsagnar.