18.01.1943
Neðri deild: 36. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 9 í D-deild Alþingistíðinda. (3237)

5. mál, hafnarskilyrði á Þórshöfn

Frsm. (Gísli Guðmundsson):

Sjútvn. hefur haft þessa till. til meðferðar, um fullnaðarrannsókn hafnarskilyrða á Þórshöfn, á þskj. 5. N. hefur leitað umsagnar vitamálastjóra um till., og er í umsögn hans lýsing á aðstöðunni, sem þarna er um að ræða. Umsögnin er prentuð sem fskj. með nál. á þskj. 188. N. leggur til, að till. verði samþ. með orðabreyt. samkv. því, sem segir í nál.