30.03.1943
Neðri deild: 86. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 419 í C-deild Alþingistíðinda. (3263)

122. mál, tímarit til rökræðna um landsmál

Frsm. minni hl. (Jörundur Brynjólfsson):

Hæstv. forseti hefur ]rað auðvitað á valdi sínu, til hvers þær mínútur eru notaðar, sem eftir eru af fundartímanum, en fundur byrjar í Sþ. kl. 3, og jafnvel þótt um venjulegan fundartíma væri að ræða, mundi mér varla nægja það. Nú veit ég til þess, að búið er að boða nefndarfund kl. 3.30, og má því ekki taka mikið af fundartíma Sþ.