05.02.1943
Neðri deild: 50. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 20 í D-deild Alþingistíðinda. (3317)

68. mál, vegagerð og símalagning

Gísli Guðmundsson:

Ég færi hv. frsm. þakkir og n. fyrir afgreiðslu hennar, sem er á þá leið, sem sjá má á þskj. 286. Ég vil svo aðeins í þessu sambandi skjóta því til n., hvort hún telji ekki rétt að fella niður úr 1. lið orðin „meir en nú er“. Ég sé ekki annað en þau séu óþörf, því að „auka“ þýðir að gera meir en nú er.