28.01.1943
Sameinað þing: 16. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 51 í D-deild Alþingistíðinda. (3416)

25. mál, milliþinganefnd í sjávarútvegsmálum

Skúli Guðmundsson:

Fyrir þessu þingi liggur till. til þál. um mþn. í sjávarútvegsmálum. Þetta er 25. mál á þskj. 35. Ég er einn af flm. þessarar þáltill. Um till. voru ákveðnar tvær umr., og lauk þeirri fyrri 16. des. s.l., og var þá till. vísað til allshn. Nú hefur þessi n. ekki skilað áliti um þessa till., þótt hún hafi skilað áliti um mörg mál, sem hefur verið vísað til hennar síðar. Ég vil vænta þess, að n. skili áliti um þetta mál hið bráðasta, og beini því til hæstv. forseta, að hann beiti áhrifum sínum til þess, að svo megi verða.