09.02.1943
Sameinað þing: 23. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 51 í D-deild Alþingistíðinda. (3418)

25. mál, milliþinganefnd í sjávarútvegsmálum

Frsm. (Sigfús Sigurhjartarson):

Herra forseti. — Allshn., sem hefur haft til athugunar till. til þál. á þskj. 35, hefur orðið sammála um öll aðalatriði. Fjórir nm. leggja til, að hún verði samþ. óbreytt, og má vísa þar til grg., sem fylgir, og þess, sem áður hefur verið sagt um málið í Sþ. Þrír nm. hafa lagt til á þskj. 352, að nokkrar orðabreyt. verði gerðar. En eins og áður er tekið fram, leggur meiri hl. n. til, að till. verði samþ. óbreytt.