29.01.1943
Efri deild: 44. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 142 í B-deild Alþingistíðinda. (353)

127. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur í febrúar 1943

Forsrh. (Björn Þórðarson):

Í forföllum hæstv. fjmrh. vil ég fylgja þessu frv. með nokkrum orðum inn í d.

Eins og hv. d. er kunnugt, falla l. frá 29. des. f.á. um bráðabirgðafjárgreiðslur í janúar niður um næstu mánaðamót, og með því að nauðsyn ber til að framlengja innihald þeirra l. fram til miðs febr., er þetta frv. fram borið, þar sem sýnt er, að fjárlög verða eigi afgr. fyrr en í þeim mánuði, og er þörf á, að frv. gæti fengið fullnaðarafgreiðslu frá d. nú í dag, og er ósk mín, að það verði gert.