16.03.1943
Sameinað þing: 32. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 88 í D-deild Alþingistíðinda. (3559)

101. mál, lóðir ríkisins við Lækjartorg og Lækjargötu

Flm. (Jónas Jónsson):

Þessi þáltill. fer fram á, að n. verði skipuð til að undirbúa væntanlegar byggingar á lóðum ríkisins við Lækjartorg og Lækjargötu, bæði endurbyggingu á stjórnarráðshúsinu og nýjar byggingar aðrar. Ekkert er eðlilegra en að ríkið reisi opinberar byggingar á þessum lóðum sínum, sem það hefur keypt dýru verði.

Gert er ráð fyrir, að n. verði skipuð 2 mönnum úr hverjum flokki.

Ég tel ekki rétt að vísa þessu máli til n., heldur mætti fresta umr., ef menn vildu bera fram brtt., eða fyndist n. of stór.