12.02.1943
Sameinað þing: 25. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 104 í D-deild Alþingistíðinda. (3581)

135. mál, launabætur embættismanna og annarra starfsmanna ríkisins

Jakob Möller:

Ég verð að vekja athygli á því, að það er ákaflega hæpin staðhæfing að segja, að fjvn. hafi tekið afstöðu til þessarar þáltill. Fjvn. hefur einmitt alveg ákveðinn fyrirvara um flutning till. um þessa fjárveitingu og veltir henni algerlega yfir á ábyrgð ríkisstj. Sjálf hefur fjvn. enga ábyrgð viljað taka á henni, en ég tel alveg rétt, að fjvn. fái tækifæri til að lýsa afstöðu sinni til þessarar þáltill. og segi því já.