10.03.1943
Sameinað þing: 31. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 121 í D-deild Alþingistíðinda. (3612)

135. mál, launabætur embættismanna og annarra starfsmanna ríkisins

Sigfús Sigurhjartarson:

Herra forseti. — Mér finnst það hæpin afgreiðsla að koma með brtt., sem gerbreytir málinu, sem fyrir liggur, ef samþ. yrði, þá fyrst, þegar á að fara að greiða atkv. um endanlega afgreiðslu málsins. Og mér finnst einsýnt, að svona brtt. eigi ekki að koma til greina.