16.03.1943
Sameinað þing: 32. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 123 í D-deild Alþingistíðinda. (3623)

135. mál, launabætur embættismanna og annarra starfsmanna ríkisins

Gísli Guðmundsson:

Hæstv. forseti hefur talið, að till. mín mætti ekki koma til atkv. Ég minnist þess, að hæstv. forseti tók fram í fyrir hv. 10. landsk., en hann hélt eigi að síður áfram áróðri sínum. Ég hafði þá, um leið og ég heyrði þetta fram borið af hv. þm., sem gat ekki staðizt, beðið um orðið, en hæstv. forseti lét atkvgr. fram fara, án þess að mér gæfist tími til að leiðrétta þær rangfærslur, sem hv. 10. landsk. var með, en ég sé ekki ástæðu til að ræða það frekar.