22.03.1943
Sameinað þing: 33. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 139 í D-deild Alþingistíðinda. (3693)

149. mál, síldarbræðsluverksmiðjan Ægir í Krossanesi

Atvmrh. (Vilhjálmur Þór):

Ég vil mælast til, að málið sé tekið af dagskrá í dag, vegna þess að stj. hefur haft með höndum athugun í sambandi við þetta mál, sem er ekki alveg lokið enn, en ég vænti, að verði hægt innan mjög fárra daga og upplýsingar hafi þá borizt, sem kynnu að vera til þess, að málið fengi aðra meðferð, þegar þær lægju fyrir.