04.02.1943
Neðri deild: 49. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 155 í B-deild Alþingistíðinda. (375)

119. mál, verðlag

Fjmrh. (Björn Ólafsson):

Út af því, sem hv. þm. Ísaf. (FJ) hefur sagt um vöruverðið, vil ég benda honum á, að auðvitað hlýtur tilkynningin að byggjast á l. Og í l., sem hún var gefin út eftir, er beinlinis gert ráð fyrir, að hægt sé að úrskurða um, við hvaða verð skuli miðað, ef ágreiningur er. Ég kom inn á þetta mál við umr. í gær, og ég tel ekki ástæðu til að fura neitt frekar út í það nú.