06.01.1943
Sameinað þing: 13. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 262 í D-deild Alþingistíðinda. (3919)
20. mál, kjarnafóður og síldarmjöl
Sigurður Þórðarson:
Hv. þm. A.-Húnv. sagði, að það væri ekki sök ríkisstj. fyrrverandi, þó að mistök hefðu orðið á úthlutun síldarmjöls hjá kaupfélögum og öðrum verzlunum innan héraða. En ég vil vekja athygli hv. þm. á því, að þegar maður, sem stendur fyrir verzlun, veit ekki annað en að hann fái visst ákveðið magn af síldarmjöli, gætir sá sami maður þess ekki að draga neitt úr því, sem menn fá afgreitt eftir sínum pöntunum. Af þeirri ástæðu var það á s.l. hausti, að þeir, sem fyrst komu, fengu allt það síldarmjölsmagn, sem þeir pöntuðu, en ekki hinir, sem síðar komu, þegar vitað var orðið um, að ekki fengist allt síldarmjöl, sem pantað hafði verið af verzlunum. Þannig var það líka hjá okkur í Skagafirði. Við munum hafa pantað síldarmjölið 4. sept. og hinn 5. sept. fengum við svarskeyti, sem ég vil, með leyfi hæstv. forseta, lesa upp. Það er svo: „Samþykkjum selja yður allt að 200 tonn síldarmjöl. Síld.“ Það var ómögulegt fyrir mig að búast við öðru, en að við þetta yrði staðið. Svo fékk ég ekki nema 60% af þessu, en vissi ekki um það fyrr en tveimur dögum eftir kosningar. Það er því ekki að ófyrirsynju, að þetta mál verði rannsakað. Og mér þykir undarlegt að bera hv. flm. brigzlum fyrir það að fara fram á, að ríkisstj. láti rannsaka þetta mál, sem ég fullyrði, að er mesta stjórnarfarslegt hneyksli, sem komið hefur fram á Íslandi. Ef svo er, að þetta vörumagn er til í landinu og því svo vitlaust og ranglega úthlutað, að sumir bændur hafa fengið allt, sem þeir hafa pantað a.m.k. eða meira, en vitað er, að aðrir hafa fengið miklu minna en þeir pöntuðu, og kannske ekki neitt, þá er fyllsta ástæða til, að rannsókn fari fram á þessu. Og ég fer í mál við ríkisstj. fyrir hönd ríkissjóðs, ef fellir verður í Skagafirði af þessum sökum. Ég heyri, að einn hv. þm. segir, að við fáum fiskimjöl. Ég átti tal við bónda einn í Skagafirði ekki fyrir löngu, sem á 14 kýr. Hann sagði, að hann yrði að fella nokkuð af sínum skepnum, ef hann fengi ekki fiskimjöl héðan að sunnan. Þó var það nokkur bót fyrir okkur Skagfirðinga, að við áttum 500 poka af þurrum beinum, sem við fáum malað. Bændur fóðra ekki búpening sinn á diguryrðum hér á Alþ. Við krefjumst þess fyrir bændanna hönd, að athugað sé, hvort síldarmjöl er til í landinu, og að reynt sé að útvega þeim bændum síldarmjöl, sem mest þurfa þess, ef það liggur í bunkum einhvers staðar í landinu til þess að notast til áburðar á komandi vori.
Ég tala ekki þessi orð af illvilja til fyrrv. hæstv. ríkisstj. En það er næsta undarlegt, að fram til kosninga fullyrðir hún, að nóg síldarmjöl sé til í landinu og allir geti fengið eins og þeir þurfa, en strax eftir kosningar auglýsir hún, að ekki sé hægt að láta menn hafa nema 60% af því, sem þeir hafi pantað af síldarmjöli. Og þó hafa sumir alls ekki einu sinni fengið það magn. Það er ekki sanngjarnt, að þeir, sem pantað hafa síldarmjöl á tilskildum, lögmætum tíma og hafa skeyti um það frá síldarverksmiðjum ríkisins, að þeir fái það magn, sem pantað var, séu svo sviknir um það. Það er mál, sem áreiðanlega þarf að taka til rannsóknar.