09.02.1943
Sameinað þing: 23. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 274 í D-deild Alþingistíðinda. (3939)

20. mál, kjarnafóður og síldarmjöl

Skúli Guðmundsson:

Mér þykir það einkennilegt, ef því er haldið fram, að enginn hafi verið beittur órétti í sambandi við þessa úthlutun. Ég veit ekki, hvað kallast misrétti, ef ekki það, að sumir fengu allt, sem þeir vildu, og meira en þeir höfðu keypt áður, en aðrir ekki nema lítinn hluta af sínum pöntunum.