17.03.1943
Neðri deild: 77. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 276 í D-deild Alþingistíðinda. (3949)

106. mál, rafleiðsla frá Akureyri til Dalvíkur

Frsm. (Jón Pálmason):

Fjhn. þessarar d. hefur athugað þessa till. og leggur til, að henni verði vísað frá með rökstuddri dagskrá. Rannsókn sú, sem framkvæmd verður samkv. þál. frá 4. sept. 1942, nær að sjálfsögðu til þess, sem þál. fjallar um, og virðist ástæðulaust að samþ. um það sérstaka þál. Ríkisstj. mun hlutast til um þá rannsókn, svo að varla verði út undan staðir, þar sem mikill áhugi er á að leggja rafleiðslur.