18.11.1942
Sameinað þing: 1. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 43 í B-deild Alþingistíðinda. (40)

Rannsókn kjörbréfa

Jónas Jónsson:

Ég vil benda á ef þessi till. er borin upp í einu lagi, að ekki er hægt fyrir þá að greiða atkv., sem álíta, að ekki eigi að samþ. kjörbréf Gunnars Thoroddsens að svo stöddu, en vilja láta rannsaka málið í kjörbréfan. Ég álít því rétt, að borið sé upp sér í lagi, hvort kosningin skuli tekin gild, og sér í lagi, hvort rannsaka skuli málið.