19.02.1943
Sameinað þing: 27. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 305 í D-deild Alþingistíðinda. (4039)
105. mál, virkjun Lagarfoss
Flm. (Lúðvík Jósefsson):
Ég skal vera stuttorður. Það er aðeins eitt atriði. sem mig langar til að minnast á, sem greinilega kom fram hjá hv. 1. þm. Árn. og 2. þm. S.-M. þeir eru að halda því fram, að það sé alveg ástæðulaust að vera að samþykkja þessa þáltill., þar sem búið sé að samþykkja aðra þál., er nái alveg yfir efni þessarar. Og hv. 1. þm. Árn. heldur því fram, að þetta mál sé ekki í verkahring rafmagnseftirlits ríkisins, en einmitt í þessari umræddu þál., sem hann stóð að og var samþ. á sumarþ., er skýrt tekið fram. að þessa athugun eigi að framkvæma undir umsjón rafmagnseftirlits ríkisins, og var því ekki nema eðlilegt, að við snerum okkur til þess og reyndum þar að fá upplýsingar um, hvað væri aðhafzt í þessu máli. En okkur var sagt, að ekkert lægi fyrir um það, að rannsókn ætti að fara fram á næstunni. Þess vegna var ekki nema eðlilegt, að við, sem áhuga höfðum á að hrinda þessu máli í framkvæmd, legðum fram þál. til þess að ganga úr skugga um, hvernig þetta mál stæði og jafnframt að herða á eftir framkvæmdum. Það virðist og enn betur sýna fram á, hve mikil þörfin var á þessari þáltill. og að hún verði samþykkja, þegar háttv. 1. þm. Árn. er að lýsa því fyrir okkur, hve starf þetta við rannsóknina verði yfirgripsmikið, að ekki verði hægt að gera sér vonir um, að hægt sé að ljúka þessari rannsókn á einu ári. — Það er einmitt það, sem við vitum og gerum okkur ljóst, sem flytjum þessa þáltill., að það tekur tíma að athuga virkjun allra fallvatna í landinu, en við lítum svo á, að það sé sanngirnismál, sem ekki eigi að stinga undir stól, að Lagarfoss á að athugast fyrst, sökum þess, hve Austfirðir hafa undanfarið orðið að búa við kröpp kjör í rafmagnsmálum. Það er sem sagt tilgangur okkar, að úr því verði skorið, hvort Austurland eigi að fá að ganga fyrir öðrum landshlutum hvað þetta snertir.
Út af því, sem hv. 2. þm. S.-M. sagði, að við hefðum ekki talað áður við þm. kjördæmisins, og hann virðist jafnvel vera móðgaður út af því, vil ég segja það, að ég tel, að um slíkt stórmál sé ekki að ræða, að okkur ætti að vera heimilt, án þess að átalið sé, að fara fram á, að úr því verði skorið, hvort Austurland á, sökum núverandi aðstöðu sinnar til rafmagnsmálanna, að fá að ganga á undan og rannsókn fara fram á Lagarfossi á sumri komanda.
Það er auðvitað fjarri öllu lagi að segja, að við séum með þessu að helga okkur eitthvert stórmál og séum að reyna að kippa heiðrinum af þessu máli frá þeim, er barizt hafa fyrir því. Okkur hefur ekki dottið neitt slíkt í hug. Þetta mál er svo sem ekki neitt nýtt mál hér á Alþ., eins og hv. þm. vita, það hefur mikið verið rætt og við ekki fundið það upp. T.d. er þess að minnast, að Jón Þorláksson skrifaði á sínum tíma um virkjun Lagarfoss og áætlaði virkjanlega orlat fossins.
En hafi 2. þm. S.-M. mikinn áhuga á þessu máli, þá á hann að leggja kapp á það með okkur, að þáltill. verði samþ., því að það er auðsætt mál, ef öll vatnsföll landsins liggja fyrir til rannsóknar og ekkert er ákveðið um það, hvaða vatnsföll skuli rannsakast fyrst, þá höfum við enga vissu fyrir því, að rannsókn þessi fari fram á þessu ári, og litla vissu fyrir, að hún verði gerð á næsta ári.
Ég sé svo enga þörf á því, að till. þessi sé að fara til allshn., en hef þó ekki á móti því.