08.01.1943
Sameinað þing: 14. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 323 í D-deild Alþingistíðinda. (4127)
67. mál, bætur vegna fjárskaða
Bjarni Ásgeirsson:
Þó að ég viti nú ekki til þess, að áður hafi legið fyrir Alþ. till. eða kröfur um bætur á tjóni, sem bændur hafa beðið álíka þessu, sem hér hefur orðið vegna fjárskaðans, sem um getur í þáltill., þá vil ég nú samt sem áður mæla með þessari þáltill. Það má segja, að þetta skapi fordæmi, sem gæti talizt varhugavert undir venjulegum kringumstæðum. En ég vil aðeins minna á, að hér fyrir nokkrum árum skeði það, að sjávarbændur við Eyjafjörð urðu fyrir mjög miklu tjóni á bátum, húsum og útgerðartækjum af völdum ofviðris. Þá ákvað hæstv. Alþ. að bæta þeim að nokkru leyti tjón það, sem þeir urðu fyrir vegna þess veðrahams. Ég tel því, að vegna þess, sem hæstv. Alþ. gerði þá, hafi að nokkru leyti skapazt fordæmi til þess að bæta tjón eins og það, sem þessir bændur hafa orðið fyrir, sem nefndir eru í þáltill. og grg. hennar.
Ég vil enn fremur undirstrika það, sem hv. flm. þáltill. minntist á, vegna þess að nú liggur fyrir Alþ. frv., sem felur í sér ákvæði, sem lengi hafa verið í l., sem heimildarl., að bændur geti tryggt fénað sinn fyrir slysum af þessum völdum. Ef það frv. verður samþ., á síður að vera hætta á, að margar beiðnir líkar þessari, sem hér liggur fyrir, komi fram, því að þá geta menn tryggt fénað sinn fyrir slíku tjóni. Ég geri ráð fyrir, að það frv. verði samþ., og þeim mun hastarlegra væri það, ef þessir menn, sem hafa orðið fyrir þessu tjóni svo sem árið áður en slík l. gengju í gildi, gætu ekki fengið bætt þetta tilfinnanlega tjón, sem þeir hafa orðið fyrir. Ég mæli því með því, að þessi þáltill. verði samþ. Og ég tel, að sá grundvöllur undir bætur handa þessum mönnum, sem hér um ræðir, eigi að vera sá sami sem hv. flm. talaði um, að bæturnar verði hliðstæðar bótum til þeirra manna, sem misst hafa fé sitt úr sjúkdómum. Og ég tel, að sá grundvöllur verði svipaður og undir bætur til þeirra manna, sem hafa orðið fyrir mjög miklu tjóni að öðru leyti á atvinnurekstri sínum.