16.03.1943
Sameinað þing: 32. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 326 í D-deild Alþingistíðinda. (4145)
91. mál, raforkuveita í Suður-Þingeyjarsýslu
Flm. (Jónas Jónsson):
Ég sé ekki þörf á því, að málið fari til n., því að það liggur ljóst fyrir, og hér er fyrir hv. þm. ekki um annað að gera en annaðhvort að samþykkja þetta eða ekki. Rafmagnseftirlitið er þessum málum vel kunnugt, og brýn nauðsyn er fyrir hendi að fá þetta fram. Ef málið fer til n., þá er það aðeins til þess að tef ja það.