18.11.1942
Sameinað þing: 1. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 44 í B-deild Alþingistíðinda. (47)

Rannsókn kjörbréfa

Aldursforseti (IngP):

Umr. um þetta mál eru nú orðnar alllangar, og nú er byrjað á ný að ræða þessa till., sem hér hefur legið fyrir. Ég lít svo á, að þessi till. brjóti ekki í bág við þingsköp, og þess vegna mun ég bera hana undir atkv. En það verður að koma síðar fram, hvort kjörbréfan. telur sér skylt samkv. 4. gr. að fara eftir því, sem þingið hefur lagt fyrir hana.

Ég vil óska þess, að þeir, sem hér taka til máls, reyni að takmarka mál sitt sem mest, því að ég held, að frekari umr. hafi ekki veruleg áhrif á málið.